Forsíða MÓT OG KRANAR
Sumargleði Arma 8.júní Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Starfsmenn Arma skelltu sér í smá gleðiferð miðvikudaginn 8.júní til að fagna sumrinu........sem er nú reyndar varla komið miðað við veðurfar undanfarinna vikna. En, mannskapurinn klæddi sig bara extra vel fyrir vikið og lét ekki kuldann hafa áhrif á aflaklærnar. Eins og von er vísa var keppnishugur í strákunum og aðalatriðið var að fá stærsta fiskinn - vitni (aðallega Jói) segja að Jói hafi haft vinninginn í þetta skiptið. Önnur vitni segja svo eitthvað allt annað. Svoleiðis eiga líka veiðisögur að vera!
Hér má sjá nokkrar myndir úr sjóferðinni miklu :


Eftir sjóstöngina var haldið á veitingastaðinn Uno við Ingólfstorg þar sem hópurinn fékk dýrindis mat og þaðan fóru allir saddir og sælir eftir virkilega skemmtilegan dag. Því miður náðust nú engar sómasamlegar myndir af hópnum úti að borða þannig að hér koma í staðinn fleiri myndir úr sjóstönginni.


Fyrirtækið var lokað frá 14.45 þennan dag og vonandi hefur það ekki valdið viðskiptavinum okkar miklum óþægindum, beðist er afsökunar ef svo hefur verið. 

Kveðja, starfsmenn Arma 

ImageImageImageImageImageImageImage