|
Armar ehf. var stofnað árið 1999. Fyrirtækið var þá til húsa í Suðurhrauni í Hafnarfirði og samanstóð vélakosturinn af einum glussakrana.
Árið 2001 juku Armar umsvif sín með kaupum á 10 vinnulyftum, bæði skæra- og spjótlyftum. Eftir það fóru hlutirnir að rúlla og vorið 2003 flutti starfsemin sig yfir í Dalshraun 3 þar sem aðstaða var betri til alls viðhalds og viðgerða á vélunum.
Um mitt sumar árið 2005 var tækjafloti Arma kominn í rúmar 100 vélar. Húsnæðið í Dalshrauni var þá strax orðið of lítið og greinilegt var að fyrirtækið yrði að færa sig um set á nýjan leik.
Það var svo í september árið 2006 að nýtt húsnæði Arma í Flatahrauni 25 í Hafnarfirði varð tilbúið til notkunar.
Í dag er Armar ehf. eitt öflugasta lyftuleigufyrirtæki landsins með rúmlega 230 tæki til leigu. Hópur ánægðra viðskiptavina fer ört stækkandi, og við leggjum metnað okkar í að veita bestu mögulegu þjónustu við þennan hóp, dag hvern.
|
|