|
Nú eru tökur hafnar upp á hálendi á stórmyndinni Prometheus eftir leikstjórann Ridley Scott. True North, framleiðslufyrirtækið sem heldur utan um tökurnar hér á landi, hefur nú þegar tekið ýmis tæki til leigu hjá okkur í Örmum Vinnulyftum sem eiga að nýtast á tökustað; s.s búkollur, skotbómulyftara, jarðýtur, gröfur og önnur smærri jarðvinnutæki. Von er á Charlize Theron og Guy Pearce til landsins til þess að leika í myndinni en að öðru leyti liggur mikil leynd um hvað fer fram á tökustað. Engar myndatökur eru heimilar (eðlilega) svo ég læt fylgja með eina mynd af búkollu úr myndasafninu okkar.
Við í Örmum erum ótrúlega spennt að fá að sjá afrakstur "barnanna" okkar og eigum eftir að flykkjast á myndina þegar hún verður sýnd hér á landi.
Undirrituð bíður reyndar enn eftir því að vera kölluð í tökur en þetta tekur greinilega allt tíma í þessum Hollywoodbransa, hann hlýtur að hringja á endanum hann Ridley ;)
Góða helgi!
Agnes Armalína
|