Spjótlyftur eru gríðarlega öflugar og hraðvirkar og henta mjög vel í nær öll verk utandyra. Helsti kostur við spjótlyftur er að hægt er að hafa þær langt frá vinnustað því þær ná auðveldlega yfir skurði, þök, garða eða önnur tæki. Spjótlyftur komast hærra en skæralyfturnar en vinnupallurinn/karfan er oftast minni en á skæralyftunum. Þær lyfta ekki eins miklum þunga og skærin en eru handhægari og henta betur ef oft þarf að breyta staðsetningu lyftunnar.
Minnstu vélarnar henta t.d. vel til viðgerða á íbúðarhúsum þar sem þær komast í flesta garða og innkeyrslur og valda litlum skemmdum á gróðri
|
|
|