|
Skæralyftur
Armar bjóða upp á gott úrval af skæralyftum, bæði inni- og útilyftum. Innilyfturnar eru rafmagnsknúnar; þurfa 220 volta hleðslu og eru keyranlegar. Þær eru allar á hvítum dekkjum til að koma í veg fyrir skemmdir á gólfefnum og eru því tilvaldar í ýmis verkefni innandyra, s.s. að mála loft o.fl. Mjög meðfærilegar og þægilegar vinnulyftur. Hægt er að fá nánari upplýsingar um innilyfturnar undir viðkomandi flipa hér til vinstri. Útilyfturnar eru dísilknúnar og keyranlegar, 4x2 eða 4x4. Smærri lyfturnar (t.d. Genie GS -3268) eru tilvaldar í minni verk (t.d.þakviðgerðir) því þær er hægt að keyra inn í garða án þess að þungi þeirra skemmi jarðveginn. Stærri lyfturnar eru hins vegar orðnar það þungar að þær eru nær einungis notaðar á byggingasvæðum og í umsvifameiri verk. Hægt er að fá nánari upplýsingar um útilyfturnar undir viðkomandi flipa hér til vinstri. Skæralyfturnar eru vinnuþjarkar með stórum vinnupöllum sem geta lyft miklum þunga í mikla hæð. Þær ganga lóðrétt og þurfa því að standa upp við verkið/bygginguna sem vinna á við. Flestar skæralyftur eru með vinnupöllum/körfum sem hægt er að stækka út, jafnvel út frá báðum hliðum. Þær stærstu bjóða því upp á umtalsvert vinnupláss fyrir nokkra aðila, allt að 12 fermetrum.
Spjótlyftur
Spjótlyftur eru gríðarlega öflugar og hraðvirkar og henta mjög vel í nær öll verk utandyra. Helsti kostur við spjótlyftur er að hægt er að hafa þær langt frá vinnustað því þær ná auðveldlega yfir skurði, þök, garða eða önnur tæki. Spjótlyftur komast hærra en skæralyfturnar en vinnupallurinn/karfan er oftast minni en á skæralyftunum. Þær lyfta ekki eins miklum þunga og skærin en eru handhægari og henta betur ef oft þarf að breyta staðsetningu lyftunnar. Minnstu vélarnar henta t.d. vel til viðgerða á íbúðarhúsum þar sem þær komast í flesta garða og innkeyrslur og valda litlum skemmdum á gróðri. Hægt er að fá nánari upplýsingar um spjótlyftur undir viðkomandi flipa hér til vinstri.
Zeta- spjótlyftur (articulating booms)
Zetu-spjótin eru byggð þannig að mótvægið (ballest) fer ekki út fyrir hjólastellið (zero tailswing). Þar af leiðandi henta zetu-spjótin vel við mikil þrengsli, t.d. í verksmiðjur þar sem gangar eru mjóir og spjótin þurfa að ná yfir rör, tanka og aðrar hindranir. Hægt er að fá nánari upplýsingar um zetu-spjót undir viðkomandi flipa hér til vinstri.
Gaffal - og skotbómulyftarar
Armar eiga gott úrval af gaffallyfturum í ýmsum stærðum; bæði rafmagns- og dísilknúna. Léttir og þægilegir lyftarar sem eru vinsælir í allar verksmiðjur og annars staðar þar sem flytja þarf mikið af efni milli staða. Hægt er að fá nánari upplýsingar um alla gaffallyftara undir flipanum "lyftarar" hér til vinstri. Skotbómulyftararnir eru sérlega lipur tæki sem nýtast vel á stórum byggingasvæðum. Þeir eru búnir góðu ökumannshúsi, fjórhjóladrifi og með fjórhjólastýri. Auk þess bjóða þeir upp á að hægt er að nota skóflu eða vélsóp í stað gaffla. Einnig eru til leigu nokkrar gerðir af skotbómulyfturum með snúningskrans. Hægt er að fá nánari upplýsingar um skotbómulyftara undir viðkomandi flipa hér til vinstri.
Gröfur og önnur tæki til byggingaframkvæmda
Armar hafa til leigu gröfur af ýmsum stærðum og gerðum sem henta fyrir stór og smá verk; allt frá garðvinnu til stórra jarðvegsframkvæmda. Stærstu gröfurnar geta grafið allt að 5 metra djúpt. Hægt er að fá nánari upplýsingar um gröfur undir viðkomandi flipa hér til vinstri. Armar hafa einnig til leigu önnur tæki sem nýtast vel á byggingasvæðum og í önnur smærri verk; s.s. rafstöðvar, loftpressur, byggingakrana o.fl. Hægt er að fá nánari upplýsingar um eiginleika og almennar tækniupplýsingar um tækin undir flipanum "önnur tæki" hér til vinstri.
|
|