Forsíða VINNULYFTUR Útilyftur/skæri
Útilyftur/skæri
gs-5390 (wince).jpg

Útilyfturnar eru dísilknúnar og keyranlegar, 4x2 eða 4x4. Smærri lyfturnar (t.d. Genie GS -3268) eru tilvaldar í minni verk (t.d.þakviðgerðir) því þær er hægt að keyra inn í garða án þess að þungi þeirra skemmi jarðveginn. Stærri lyfturnar eru hins vegar orðnar það þungar að þær eru nær einungis notaðar á byggingasvæðum og í umsvifameiri verk.

Skæralyfturnar eru vinnuþjarkar með stórum vinnupöllum sem geta lyft miklum þunga í mikla hæð. Þær ganga lóðrétt og þurfa því að standa upp við verkið/bygginguna  sem vinna á við. Flestar skæralyftur eru með vinnupöllum/körfum sem hægt er að stækka út, jafnvel út frá báðum hliðum. Þær stærstu bjóða því upp á umtalsvert vinnupláss fyrir nokkra aðila, allt að 12 fermetrum. 

1 Genie GS-2668RT
2 Genie GS-4390RT
3 Genie GS-3384RT
4 Genie GS-5390RT
5 Genie GS-3268RT